Kirkjur Íslands. 1.-10. b.

Víst er um það að bókaflokkurinn Kirkjur Íslands eru þegar orðinn ómissandi þáttur í menningarsögu okkar. Þá hlýtur kaflinn um hverja kirkju um sig að teljast skyldulesning fyrir alla þá sem tengjast viðkomandi kirkju á einhvern hátt, presta, sóknarnefndarfólk og söfnuð.

Bandarískur fjölmiðlafræðingur fjallar um eftirköst atburðanna 11. september

Bandarískur fjölmiðlafræðingur fjallar um eftirköst atburðanna 11. september 2001. Eric W. Rothenbuhler, prófessor við fjölmiðla- og boðskiptadeild Texas A&M University, heldur opinberan fyrirlestur í boði félagsvísindadeildar Háskóla Íslands í stofu 101 í Odda mánudaginn 2. júní næstkomandi kl. 12:00.

Um holdgun Orðsins á málstofu Guðfræðistofnunar

Dr. Kristinn Ólason guðfræðingur heldur erindi um efnið „Um holdgun Orðsins. Játning í mótun á fyrri hluta 4. aldar“ í stofu 207 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands mánudaginn 7. apríl kl. 12:00.

Ný bók: Í ljóssins barna selskap

Nýlega kom út ritið Í ljóssins barna selskap, þar sem prentaðar eru greinar unnar upp úr fyrirlestrum frá ráðstefnu sem haldin var í Hallgrímskirkju 28. október 2006. Höfundarnir ellefu koma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi og fjalla um ýmsar hliðar menningar og lista á 17. öld. Mest fer fyrir bókmenntafræði en einnig er hér fjallað um heimspeki, guðfræði, tónlist og myndlist.

Alister E. McGrath heimsækir Skálholt

Alister E. McGrath

Dagana 1.-4. september nk. heimsækir Ísland Alister E. McGrath prófessor í sögulegri guðfræði við Oxfordháskóla og forseti Oxford Centre for Christian Apologetics í Wycliffe Hall. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur. McGrath mun halda sólarhringsnámskeið í Skálholtsskóla fyrir íslenska presta, guðfræðinga, djákna, nemendur guðfræðideildar og annað áhugafólk um guðfræði.

Biblía 21. aldar: Verklag og viðtökur – gagnrýni svarað

Biblían

Á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða fimmtudaginn 6. mars flytur Guðrún Kvaran prófessor erindið Biblía 21. aldar: Verklag og viðtökur – gagnrýni svarað. Í fyrirlestrinum segir hún m.a. frá erindisbréfi þýðingarnefnda beggja testamenta, ræðir um mikilvægar breytingar og fjallar um viðtökur þýðingarinnar.

Tilvist, trú og tilgangur

Kápumynd - Tilvist, trú og tilgangur

Tilvist, trú og tilgangur er nýtt rit úr smiðju Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Guðfræðingar hafa tíðum leitað í smiðju til heimspekinnar til að skýra samband Guðs og manns. Í þessari bók er fjallað um nokkrar helstu kenningar um tilvist Guðs, allt frá guðssönnunum Anselms til guðsafneitunar Nietzsches. Lýst er tengslum guðfræði og heimspeki, inntak trúarhugtaksins er útskýrt, auk þess sem fjallað er um þá tilvistartúlkun sem löngum hefur sett mark sitt á evangelísk-lútherska guðfræði. Ritið er eitt fjögurra rita sem Sigurjón Árni hefur gefið út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.

Hinn krossfesti Guð - um guðfræði krossins

Jürgen Moltmann tekinn upp

Þýski guðfræðingurinn Jürgen Moltmann sótti Ísland heim í byrjun sumar. Skálholtsskóli hafði frumkvæði að komu hans hingað til lands og þar hélt Moltmann námskeið sem var vel sótt af íslenskum guðfræðingum og guðfræðinemum. Hann flutti jafnframt erindi í hátíðarsal Háskóla Íslands. Efnið var guðfræði krossins, en yfirskrift erindisins var The Crucified God. A Theology of the Cross. Erindið var tekið upp og hægt er að hlusta á það í hlaðvarpinu hér á vefnum.

Kvikmyndir á kirkjulistahátíð

Vier Minuten

Rannsóknarhópurinn Deus ex cinema tekur þátt í dagskrá Kirkjulistahátíðar eins og undanfarin ár. Að þessu sinni er óvenju fjölbreytt dagskrá, með pallborðsumræðum um efnið Guð á hvíta tjaldinu og sýningum á tveimur kvikmyndum: Vier Minuten og La Passion de Jeanne d´Arc. Nánar má lesa um dagskrána á vef Deus ex cinema, þar er einnig að finna viðtal við Gunnar J. Gunnarsson um kvikmyndina Vier Minuten.

Ísland - náttúrlega í hlaðvarpinu

Ísland - náttúrulega

Málþingið Ísland - náttúrulega var haldið í Skálholti á Jónsmessu. Þar mættust hagsmunaaðilar og fræðimenn úr ólíkum áttum ti lað ræða um framtíðarsýn og umhverfismál. Meðal annars var rætt um náttúruvernd og nýtingu. Átta erindi voru flutt á málþinginu. Þau voru öll tekin upp af Ævari Kjartanssyni og nú er hægt að hlusta á þau í hlaðvarpinu hér á vefnum.

Syndicate content