Biblía 21. aldar: Verklag og viðtökur – gagnrýni svarað

Biblían

Á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða fimmtudaginn 6. mars flytur Guðrún Kvaran prófessor erindið Biblía 21. aldar: Verklag og viðtökur – gagnrýni svarað. Erindi sínu lýsir hún svo:

„Flestir hafa tekið nýrri Biblíu með opnu og jákvæðu hugarfari, nokkrir gagnrýnt einstök orð, vers eða kafla, aðrir rifið niður. Fjölmiðlar hafa í ríkum mæli beint kastljósi sínu að gagnrýni á þýðinguna, en hrós um hana hefur síður náð athygli þeirra. Í fyrirlestrinum verður sagt frá erindisbréfi því sem þýðingarnefndir beggja testamenta fengu í hendur og mikilvægi þess að það sé rétt túlkað. Rætt verður um tvær breytingar sem snertu allt ritið, kynningarheftin og viðbrögð við þeim en síðan verður snúið að þeirri gagnrýni sem fram hefur komið í fjölmiðlum, einkum Lesbók Morgunblaðsins, og í fyrirlestrum Jóns G. Friðjónssonar prófessors.“

Guðrún Kvaran er prófessor í íslensku máli við hugvísindadeild Háskóla Íslands og stofustjóri orðfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún var formaður þýðingarnefndar þeirrar er skipuð var í tilefni hinnar nýju biblíuþýðingar: Biblíu 21. aldar.

Rannsóknarkvöldið verður haldin í stofu 101 í Odda. Dagskráin hefst kl. 20.