Alister E. McGrath heimsækir Skálholt

Alister E. McGrath

Dagana 1.-4. september nk. heimsækir Ísland Alister E. McGrath prófessor í sögulegri guðfræði við Oxfordháskóla og forseti Oxford Centre for Christian Apologetics í Wycliffe Hall. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur. McGrath mun halda sólarhringsnámskeið í Skálholtsskóla fyrir íslenska presta, guðfræðinga, djákna, nemendur guðfræðideildar og annað áhugafólk um guðfræði. Búast má við fjölmenni. Námskeiðið hefst kl. 18.00 þriðjudaginn 2. sept. og því lýkur um kaffileitið á miðvikudegi. Námskeiðsgjald er 8.000.- kr. og dvalarkostnaður 10.000.- (gisting í skóla eða bústað og fullt fæði). Skráning í Skálholtsskóla í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is fyrir 1. Júní 2008. Staðfestingargjald kr. 8.000.- kr. greiðist fyrir sama tíma. Þá er stefnt að því að McGrath flytji opinbert erindi við guðfræðideild Háskóla Íslands á þriðjudeginum 2. sept. kl. 11.00. Nánar á vef Skálholts ...