Dr. Kristinn Ólason guðfræðingur heldur erindi um efnið „Um holdgun Orðsins. Játning í mótun á fyrri hluta 4. aldar“ í stofu 207 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands mánudaginn 7. apríl kl. 12:00.
Dr. Kristinn Ólason guðfræðingur, þýðandi ritsins Um holdgun Orðsins eftir
Aþanasíus frá Alexandríu fjallar um verkið, tilgang þess og merkingu. Leitast verður við að sýna fram á tengsl þess við Níkeujátninguna 325 og varpa ljósi á áherslur þess í samanburði við önnur sambærileg rit frá sama tíma.
Staður: Aðalbygging 207