Málþingið Ísland - náttúrulega var haldið í Skálholti á Jónsmessu. Þar mættust hagsmunaaðilar og fræðimenn úr ólíkum áttum ti lað ræða um framtíðarsýn og umhverfismál. Meðal annars var rætt um náttúruvernd og nýtingu. Átta erindi voru flutt á málþinginu. Þau voru öll tekin upp af Ævari Kjartanssyni og nú er hægt að hlusta á þau í hlaðvarpinu hér á vefnum.
Málþingið hófst á laugardag 23. júní með máli umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnardóttur en svo segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna frá sinni framtíðarsýn í þessum efnum. Á eftir voru pallborðsumræður fulltrúa allra stjórnmálaflokka.
Þá fjölluðu hagsmuna- og fagaðilar um nátturu Íslands á 21. öldinni með tilliti til verndunar eða nýtingar. Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, Árni Finnsson formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins voru með framsögur um efnið.
Á Jónsmessu, sunnudaginn 24. júní fluttu Jón Á. Kalmannsson heimspekingur, dr. Kristinn Ólason rektor og Jóna Bjarnadóttir umhverfisstjórnunarfræðingur erindi.